Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali
[email protected] kynna:
Heiðarvegur 26, Reyðarfirði.
Um er að ræða vandað timburhús með stórum sólpalli með skjólveggjum.
Húsið er á mjög vinsælum stað þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttamannvirki og fallegt og fjölbreytt útivistarsvæði.
Innréttingar og gólfefni eru af vandaðri gerð.
Eldhúsið er með stórri og góðri innréttingu sem að hluta til skilur eldhúsið frá stofunni og eru skápar báðu megin.
Góðir fataskápar eru í herbergjum og forstofu og innrétting í þvottahúsi.
Baðherbergið er allt flísalagt og bæði með nuddbaðkari og sturtu. Góð innrétting er á baðherbergi.
Bílskúrinn er rúmgóður, fullbúinn og með flísum á gólfi.
Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati en 0.4% fyrir fólk sem er að kaupa sína fyrstu fasteign. Lögaðilar greiða 1.6% af fasteignamati.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi, umboði o.fl. 2.000 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 48.980 kr. m.vsk.