INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
Þriggja herbergja íbúð í parhúsi við Þverholt á Vopnafirði.
Komið er inn í rúmgóða dúkalagða forstofu. Innaf forstofu er kyndiklefi og þvottahús með geymsluhillum þar sem er steypt málað gólf. Úr forstofu er komið inn í sameiginlegt rými stofu og eldhúss. Parket er á gólfi nema í eldhúskrók þar sem er dúkur. Innrétting lítur vel út og er með fínu skápaplássi. Baðherbergi er er flísalagt í hólf og gólf með góðri innréttingu og sturtu með gleri. Tvö ágætlega rúmgóð svefnherbergi með parketi á gólfum eru í íbúðinni. Annað herbergið er með þreföldum fataskáp.
Húsið er timburklætt að utan. Útidyrahurð og gluggar þarfnast viðhalds.