LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali
[email protected] kynna:
Stekkholt 8, Fáskrúðsfirði
Vandað staðsteypt parhús með innbyggðum bílskúr og miklu útsýni.
Húsið er einangrað bæði að utan og innan og klætt með vandaðari grárri PVC klæðningu.
Allt gler í húsinu er tvöfalt gasfyllt einangrunargler með sólarfilmu. Gluggar og opnanleg fög eru úr viðhaldslausu hvítu plasti, PVC.
Heildarstærð eignarinnar er 174,3 fermetrar og skiptist í stórt alrými (65,7 fermetrar nettó) sem er stofa, borðstofa og eldhús. Lofthæð er mikil og allt að 3.30 í alrými. Svefnherbergin eru 3 og það stærsta 20 fermetrar (innanmál) með miklu og fallegu útsýni. 2 Svefnherbergi eru 10,5 fermetrar (innanmál). Vandaðir skápar eru í öllum herbergjum.
Bílskúrinn er 24 fermetrar.
Eldhústæki eru frá Siemens, nema ísskápurinn sem er frá Samsung. Breitt helluborð 80 cm, innbyggður ískápur, ofn og uppþvottavél. Innrétting með eyju er sérsmíðuð hjá Trévangi.
Ceruse Blanc vínilparket er á alrými, forstofu og svefnherbergjum en votrými eru flísalögð.
Nútímalegt baðherbergið með fallegri innréttingu, rúmgóðri sturtu, upphengdu klóseti, stórum 60x60 flísum á gólfi. Á veggjum eru ljósgráar flísar óreglulegu dekkra mynstri.
Þvottahús er með góðri innréttingu, gólf flisalagt.
Fyrir framan bílskúrinn, sem er 24 fermetrar, er tvöfalt bílastæði og rafmagnstafla gerir ráð fyrir rafhleðslustöð.
Góð lýsing er framan og aftan við húsið.
Lóðin er þannig staðsett að hús sunnan við lóðina standa mikið lægra og sést því ekki inn um glugga hússins nema af lóð hússins.
Steypt bílaplan og búið að tyrfa lóð.
Um er að ræða stórglæsilegt parhús á einum fallegasta útsýnistað á Fáskrúðsfirði.
.
Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati en 0.4% fyrir fólk sem er að kaupa sína fyrstu fasteign. Lögaðilar greiða 1.6% af fasteignamati.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi, umboði o.fl. 2.000 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 48.980 kr. m.vsk.