Lf-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali
[email protected] og
HEIMIR ARNFINNSSON LÖGGILTUR FASTEIGNASALI S. 868-2500 [email protected] kynna:
Hafnarbraut 20, Neskaupstað. EINBÝLISHÚS MEÐ INNBYGGÐUM BÍLSKÚR.
Húsið er lítillega tengt öðru húsi en um aftara húsið er að ræða.
Inngangur, geymslur og bílskúr eru á neðri hæð.
Á efri hæðinni er rúmgóð íbúð sem skiptist í mjög stórt forstofuherbergi með sér baðherbergi og íbúð með stóru miðjurými sem jafnframt er borðstofa og vinnukrókur.
Úr miðjurýminu er gengið í stofu, eldhús, 3 svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Úr þvottahúsinu er gengið út í bakgarð og svaladyr eru á borðstofunni og liggja þær út á hellulagða verönd.
Malbikað bílaplan er framan við bílskúrinn.
Húsið hefur nýlega verið talsvert endurnýjað að innan og eru gólfefni og eldhúsinnrétting nánast nýtt.
Húsið hefur nýlega verið múrviðgert og málað.
Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati en 0.4% fyrir fólk sem er að kaupa sína fyrstu fasteign. Lögaðilar greiða 1.6% af fasteignamati.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi, umboði o.fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - almennt fast gjald á bilinu 50 - 60.000 kr.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 48.980 kr. m.vsk.