INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
Vel skipulögð þriggja herbergja íbúð á jarðhæð í fjölbýlishúsi. Sér inngangur er í íbúðina.Stofa og eldhús með eldri innréttingu eru í opnu rými. Parket er í stofu en flísar í eldhúsi. Úr rýminu er útgengt í garð. Inn af eldhúsi er þvottahús og geymsla með máluðu gólfi. Á baðherbergi er dúkur, þar er baðkar með sturtu í. Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni, bæði með parekt á gólfi og fataskápum.
Engar viðhaldsframkvæmdir eru áætlaðar hjá húsfélaginu eins og staðan er í dag en veðurkápa hússins þarfnast orðið viðhalds og er kaupendum því bent á að skoða húsið vel.