LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali
[email protected] kynna:
Hátún 10, Eskifirði
4ra til 5 herbergja einbýli á einni hæð.
Gengið er inn í litla forstofu.
Innan við forstofuna er rúmgott hol og þar við hliðina ágæt stofa. Áður var opið milli stofu og hols en léttur veggur hefur verið settur í op sem var á milli rýmanna og stofan er nú notuð sem stórt svefnherbergi og holið sem stofa.
2-3 svefnherbergi eru í húsinu. Í dag er eitt herbergið notað sem fataherbergi og er það inn úr stærsta herberginu,
Eldhúsið er með stórri upprunalegri innréttingu.
Inn úr eldhúsinu er þvottahús með dyrum út.
Inn úr þvottahúsinu er lítil geymsla.
Baðherbergið er flísalagt og með baðkari.
Innandyra er húsið snyrtilegt og með nýlegu parketi á gólfum.
Hitaveita er í húsinu,
Gluggar og stétt framan við húsið þarfnast endurbóta.
Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati en 0.4% fyrir fólk sem er að kaupa sína fyrstu fasteign. Lögaðilar greiða 1.6% af fasteignamati.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi, umboði o.fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - almennt fast gjald á bilinu 50 - 60.000 kr.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 48.980 kr. m.vsk.