INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
Hótel - Bar - Veitingastaður!
Tækifæri til að hefja eigin rekstur.Stórt og mikið hús þar sem í nokkuð langan tíma hefur verið rekið hótel. (Hótel Capitano).
Á neðri hæð er móttaka og bar í notalegu rými. Þar er veitingastaður með nokkuð vel útbúnu eldhúsi og tveir matsalir með sæti fyrir 40 manns. Á neðri hæð eru einnig salerni og ein skrifstofa.
Á efri hæð er nokkuð rúmgóð setustofa og átta tveggja manna herbergi til útleigu. Öll herbergi eru með sér baðherbergi. Mögulegt að bæta 9. herberginu við.
Nánari upplýsingar hjá INNI fasteignasölu.