LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali
[email protected] kynna:
Útgarður 7, EgilsstöðumGóð 4ra herbergja íbúð á efstu hæð í litlu fjölbýlishúsi. Mjög fallegt útsýni er frá íbúðinni. Gluggar í 3 áttir.
Baðherbergið er með baðkari og innréttingu. Flísar á gólfi og upp á veggi.
Þvottahús er inn úr baðherberginu.
Eldhúsið er rúmgott með litríkri innréttingu. Gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingunni og í dag er til staðar gömul topphlaðin uppþvottavél.
Stofan er nokkuð rúmgóð með dyrum út á svalir.
Svefnherbergin eru 3, stærsta herbergið er með góðum fataskáp, annað minni herbergjanna er með litlum fataskáp en hitt (forstofuherbergið) er án skáps.
Fataherbergi/geymsla er inn úr forstofunni.
Geymsla á jarðhæð fylgir íbúðinni ásamt sameiginlegri hjólageymslu.
Fallegt og gott útsýni er frá íbúðinni.
Nokkuð stórar svalir