LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali
[email protected] kynna:
Óseyri 5, Reyðarfirði NÝBYGGINGFullbúnar nýjar stúdíóíbúðir í 10 íbúða tveggja hæða húsi nálægt almenningssamgöngum og helstu þjónustu á Reyðarfirði.
Áætluð afhending um áramót 2024/2025
Frábær fyrstu kaup eða tilbúið til útleigu þar sem mikil vöntun er á svona leiguhúsnæði.
Íbúðirnar falla undir skilyrði hlutdeildarlána.
Um er að ræða nýjar um 43,3 m2 fullbúnar nútímalegar stúdíóíbúðir með öllu.
Algild hönnun með svölum/verönd og geymslum.
Nánari lýsing: Hver íbúð er um 36,5 m2 og sér geymsla 6,8 m2 að stærð.
Parket og flísar á gólfum.
Að innan skiptist íbúðin í baðherbergi og rúmgott alrými með
eldhúsinnréttingu/tækjum, ísskápur/frystir fylgja, fataskápur, 160cm hjónarúm, sófi, borði/stólar,
sjónvarp/skápur, sængur, koddar, leirtaui og lín.
Baðherbergið er með innréttingu, sturtu, salerni og handklæðaofni.
Sameiginlegt þvottahús er í sameign, þvottavélar og
þurrkarar fylgja á báðum hæðum.
Viðhaldslítið tveggja hæða hús, timbur og ál gluggar, klætt með Cedral klæðningu, þykkir veggir og mjög góð hljóðeinangrun.
VERÐ ÍBÚÐANNA ER TENGT BYGGINGARVÍSITÖLU OG MIÐAÐST VERÐIÐ VIÐ VÍSITÖLUNA Í SEPTEMBER 2024