INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
Glæsileg og nokkuð mikið endurnýjuð íbúð í raðhúsi við Kvíabrekku á Reyðarfirði. Húsið er klætt að utan, bílastæði er malbikað og aðkoma að húsi er steypt.
Síðastliðið ár er m.a. búið að endurnýja allt parket í íbúðinni, baðherbergi hefur nánast allt verið endurnýjað, flísar í forstofu hafa verið endurnýjaðar og sama má segja um borðplötu, vask og blöndunartæki í eldhúsi. Nýr vaskur og vaskaskápur er í þvottahúsi. Öll íbúðin (veggir og loft) var máluð af fagmanni. Flísar eru á forstofu, þar er opið fatahengi og efri skápar. Stofa og eldhús eru í opnu rými með parket á gólfi. Fín innrétting er í eldhúsi. Útgengt eru úr stofu/eldhúsi í bakgarð. Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni, bæði með parket á gólfi og fataskápar eru í þeim báðum. Baðherbergi er flísalagt, þar er ágæt innrétting og rúmgóð sturta. Þvottahús er flísalagt og úr þvottahúsi er útgengt í bakgarð. Í íbúðinni er nokkuð góð geymsla með parket á gólfi og litlum glugga (opnanlegt fag).
Mjög fín íbúð.