LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali
[email protected] kynna:
Melbrún 10, Reyðarfirði Rúmgott og fallegt einbýlishús ásamt bílskúr á FRÁBÆRUM ÚTSÝNISSTAÐ á Reyðarfirði.
SKIPTI Á EIGN Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU KOMA TIL GREINA.Íbúðarhúsið skiptist í 3 rúmgóð svefnherbergi, samliggjandi eldhús, borðstofu, stofu og hol, baðherbergi með baðkari og sturtu, gestasnyrtingu, forstofu og þvottahús. Innfelld lýsing er í flestum loftum og eru loftin í flestum rýmum tekin upp. Vönduð heimilistæki af gerðinni Gorenje eru í húsinu. spanhelluborð og innbyggðir ofnar, bæði hefðbundinn bökunarofn og örbylgjuofn.
Geymsluherbergi er inn úr bilskúrnum.
Verönd er sunnan við húsið og þaðan og úr húsinu er mjög víðsýnt.
Bílaplanið hefur nýlega verið hellulagt.
Hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla fylgir.
Og fyrir þau sem muna eftir Fortitude má geta þess að þetta er Sutter House.