Heiðarvegur 27, 730 Reyðarfjörður
57.500.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
6 herb.
163 m2
57.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1975
Brunabótamat
62.970.000
Fasteignamat
48.900.000

INNI fasteignasala s. 580 7905 -  [email protected]
 

Vel staðsett einbýlishús með fimm svefnherbergjum og bílskúr.
Gengið er inn í flísalagða forstofu með tvöföldum fataskáp. Inn af forstofu er dúkalagt herbergi með einföldum fataskáp. Frá forstofu er komið í hol og þar til vinstri er rúmgóð stofa með parketi á gólfi. Beint áfram er korklagt eldhús með upprunalegri innréttingu og tækjum. Frá eldhúsi er gengið í þvottahús með máluðu steyptu gólfi og þar er líka geymsla. Útgengt er út í garð frá þvottahúsi. Í holi er lítið gestasalerni með flísum á gólfi. Til hægri er parketlagður herbergjagangur og á honum eru fjögur svefnherbergi með parketi á gólfum.  Tvö stór herbergi með stórum fataskápum og tvö minni án fataskáps. Á gangi er einfaldur innbyggður skápur. Baðherbergi er upprunalegt og þar er dúkur á gólfi, baðkar, klósett og standandi vaskur. Bílskúr er óeinangraður og með steyptu gólfi. Í bílskúr er ný bílskúrshurð sem getur verið rafknúin en er ekki tengd við rafmagn eins og er. Allar lagnir í húsinu eru upprunalegar en hitakútur hefur verið endurnýjaður. Gluggar eru upprunalegir en skipt hefur verið um gler í gluggum í stofu og í einu herbergi. Þak er upprunalegt. Framan við húsið er steypt verönd með skjólvegg, stórt malbikað bílastæði og vel gróinn garður.
Frá húsinu er falleg fjallasýn og engin byggð er bak við hús, bara friðsæl náttúran.
Vel skipulagt hús sem er að mestu leyti upprunalegt en hefur augljóslega verið vel við haldið. .

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send..

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send..