Lf-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali
[email protected] kynna:
Þiljuvellir 35, Neskaupstað, efri hæð og bílskúr.165,1 fm., efri hæð og óinnréttað ris, ásamt bílskúr í tvíbýlishúsi við Þiljuvelli í Neskaupsstað.
Íbúðin er skráð 134,5 fm og bílskúr 30,6 alls 165,1 fm.
Lýsing eignar: Falleg og björt mikið uppgerð íbúð.
Komið er inn í flísalagða forstofu með gólfhita.
Eldhús með nokkuð stórri hvítri innréttingu. Nýlegur ofn og span helluborð. Einnig fylgir innbyggður örbylgjuofn og vínkælir. Uppþvottavél fylgir.
Barstólar í eldhúsi geta fylgt.
Samliggjandi stofur (stofa og borðstofa) með lítilli sólstofu. Sófi í stofu getur fylgt. Tvö svefnherbergi en hægt að innrétta fleiri á rishæðinni.
Baðherbergið er nýlega uppgert, flísalagt og með sturtu með glervegg.
Rishæð er mikið undir súð og er óinnréttuð en þar er möguleiki að bæta við svefnherbergjum.
Nýlegt parket er á gólfum.
4 nýlegir gluggar eru í íbúðinni.
Bílskúr er staðsettur neðst í lóðinni með aðkomu frá Hólsgötu, gras yfir þaki.
Lóðin er gróin og í sameign með íbúð á neðri hæð. Samkvæmt eignaskiptasamningi er lóðinni skipt í sérnotafleti og hefur þessi íbúð eystri hluta lóðarinnar.