INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
Mjög flott íbúð með fjórum svefnherbergjum og innbyggðum 34,1 m² bílskúr í raðhúsi við Egilssel á Egilsstöðum. Íbúðin er á tveimur hæðum og er gengið af bílastæði inn á efri hæð. Þar eru stofa og eldhús í nokkuð opnu rými með parket á gólfi og upptekið loft. Útgengt úr stofu á stórar suðursvalir. Á efri hæð er mjög rúmgott svefnherbergi með parket á gólfi, herbergið er nokkuð stórt og getur vel nýst sem sjónvarpshol. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með parketflísum á gólfi. Á baðherbergi er sturta og handklæðaofn. Forstofa er flísalögð og úr forstofu er innangengt í flísalagðan bílskúr. Yfir bílskúr og hluta af efri hæð er gott geymsluloft sem búið er að klæða með timbri.
Á neðri hæð eru þrjú svefnherbergi, öll með parket á gólfi. Inn af hjónaherbergi er rúmgott fataherbergi. Baðherbergi neðri hæðar er flísalagt í hólf og gólf, þar er bæði rúmgóð sturta og baðkar sem og handklæðaofn. Þvottahús er flísalagt en parket á holi. Úr holi er útgengt á timburverönd í garði.
Vel skipulögð og flott eign, rétt við útivistarparadísina í Selskógi.