LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali
[email protected] kynna:
Egilsbraut 19, Neskaupstað.Um er að ræða hlýlega og haganlega innréttaða 2ja herbergja íbúð með svefnlofti að Egilsbraut 19
Nýlega er búið að innrétta íbúðin og hefur til þessa ekki verið búið í henni.
Allar innréttingar, hurðir, gólfefni, gluggar, vatns-og raflagnir, utanhússklæðning og þak er nýlegt.
Vinilparket er á öllum gólfum nema baðherbergi en þar eru flísar á gólfi.
Góð innrétting er í eldhúsi/alrými.
Baðherbergið er með sturtu, flísar eru á gólfi og Fibo plötur á veggjum.
Út stofu er hurð út á lóðina.
Geymsla í séreign íbúðarinnar er við hlið hennar.