Lf-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali[email protected]kynna: Heiðarvegur 13, Reyðarfirði. Vel við haldið og vel staðsett einbýlishús með sambyggðum bílskúr, stutt frá skóla og leikskóla. Íbúðarhúsið er 163,7 fermetrar og bílskúrinn er 36,0 fermetrar. Aðaðinngangur hússins er á efri hæð og við hlið hans rúmgott bílastæði. Komið er inn í rúmgóða forstofu með góðu skápaplássi. Fallegar flísar eru á fostofugólfi og hiti í gólfinu. Inn af forstofunni er gangur sem er opinn ínn í tvöfalda stofu/borðstofu. Rúmgóðar timbursvalir eru út af stofunni í vestur átt. Eldhúsið er rúmgott. 2 svefnherbergi eru á efri hæð hússins, bæði með fataskápum. Minna herbergið er notað sem sjónvarpsherbergi í dag. Baðkar er á baðherbergi á efri hæðinni. Úr ganginum er ágætur stigi niður á neðri hæðina. Þar eru 3 svefnherbergi, baðherbergi með sturtu og forstofa sem einnig er þvottahús. Hiti er í gólfum á neðri hæð. Bílskúr er sambyggður húsinu og er innangengt í hann um gang sem nýtist í dag undir útifatnað. Fallegur gróinn og skjólgóður garður er við húsið.