LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali [email protected] kynna:
Strandgata 85, EskifirðiSkemmtilegt einbýli sem var mikið endurnýjað að utan og innan fyrir einhverjum árum.
Lítill bílskúr/geymsluskúr fylgir húsinu.
Íbúðarhúsið skiptist í kjallara með 2 litlum herbergjum, rúmgott baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og rými með eldhúsvaski þar sem er hægt að hafa eldunaraðtöðu. Sér inngangur er í kjallarann og þar er hægt að búa. Einnig er innangengt í kjallarann.
Gengið er inn á aðalhæðina beint af lóðinni ofan við húsið.
Þar er forstofa, baðherbergi þar sem hægt er að hafa þvottavél, eldhús og nokkuð stóra L-laga stofa eftir endilangri suðurhlið og einnig eftir austurhliðinni.
Á rishæðinni eru 2 góð svefnherbergi og lítið súðarherbergi (barna- eða fataherbergi).