INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
Rúmgóð fjögurra herbergja íbúð á neðri hæð í tvíbýli á Reyðarfirði ásamt innbyggðum bílskúr. Þrjú svefnherbergi, útgengt á svalir með góðu útsýni, stór garður og frábær staðsetning.
Húsið er klætt að utan og lítur vel út. Bílastæði er hellulagt.Hér er um að ræða fallega íbúð á neðri hæð með sér inngangi. Stofa er í virkilega fallegu rými með parket á gólfi og góðu útsýni. Útgengt er á svalir. Í eldhúsi er fín innrétting, borðkrókur og parket á gólfi. Inn af eldhúsi er þvottahús. Búr er einnig inn af eldhúsi. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Þar er baðkar með sturtu í. Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni, öll með parket á gólfi og fataskápar eru í tveimur herbergjum. Bílskúr er nokkuð hefðbundinn með bílhurð en inn af bílskúr er mjög gott geymslupláss.
Góð og mjög vel staðsett eign á Reyðarfirði.