Heiðarvegur 17 selt með fyrirvara , 730 Reyðarfjörður
79.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús með aukaíbúð
9 herb.
241 m2
79.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
6
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1973
Brunabótamat
103.650.000
Fasteignamat
58.750.000

LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali [email protected] kynna:
Heiðarvegur 17, Reyðarfirði
Vandað og vel umgengið einbýlishús með bílskúr og aukaíbúð á neðri hæð.
Húsið hefur nýlega verið málað að utan og efri hæðin tekin talsvert í gegn að innan. 
Íbúðin var máluð og sett nýtt parket og nýir ofnar og sturta endurnýjuð.
Á efri hæð er inngangur í aðal íbúðina. Komið er inn í flísalagða forstofu.
Úr forstofunni er komið inn á gang og til hægri er stór  og björt stofa/borðstofa.
Eldhúsið er rúmgott með stórri og góðri innréttingu og flísum á gólfi.
Við hlið eldhússins er þvottahús með dyrum út.         
Við herbergjagang eru 4 svefnherbergi.
Baðherbergið er rúmgott, þar er sturta og nokkuð stór innrétting.
Ekki er opið á milli hæða en hægt er að breyta því. Í dag er geymsla á efri hæðinni þar sem stigaopið er en því var lokað með timburgólfi.
Sér inngangur er á neðri hæðina þar sem er rúmgóð 3ja herbergja íbúð.
Svalir eru við suður hlið hússins og tegjast þær tröppunum.
Innbyggður bílskúr er á neðri hæðinni. Hann er með gryfju sem jafnframt er snyrtilegur geymslukjallari.
Falleg lóð er við húsið og stórt malbikað bílaplan.
Búðaráin rennur meðfram lóðinn en mikill trjágróður á milli. 
Við Búðarána er fallegur göngustígur sem hægt er að ganga hvort sem er niður í miðbæ Reyðarfjarðar eða upp í fjall.
Mjög stutt er í skóla, leikskóla, íþróttamannvirki og leiksvæði frá húsinu.

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send..

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send..