INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
Mjög flott íbúð með bílskúr, fjórum rúmgóðum svefnherbergjum, baðherbergi flísalagt í hólf og gólf og rúmgóð stofa með útgengt á hellulagða verönd í garði. Flott eign.Stofa er rúmgóð með parket á gólfi og útgengt á verönd í garði. Í eldhúsi er fín innrétting, parket á gólfi og góður borðkrókur. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, þar er bæði baðkar og sturta sem og handklæðaofn. Í íbúðinni eru fjögur svefnherbergi, öll með parket á gólfi og fataskápar eru í öllum herbergjum. Þvottahús er flísalagt með góðri innréttingu.
Bílskúr er beint á móti íbúðinni í sérstakri bílskúrslengju. Í bílskúr er milliloft og innst í bílskúr er lokuð geymsla.
Rúmgóð og vel skipulögð íbúð í raðhúsi á einni hæð.