Litluskógar 14, 700 Egilsstaðir
99.000.000 Kr.
Einbýli
5 herb.
194 m2
99.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2003
Brunabótamat
89.500.000
Fasteignamat
72.150.000

INNI fasteignasala s. 580 7905 -  [email protected]
 

Sérlega fallegt og vel skipulagt einbýlishús með fjórum svefnherbergjum, frístandandi 45 m² bílskúr, steyptu bílastæði með snjóbræðslukerfi og garði sem er algjör sælureitur. Mjög flott eign í góðu ástandi.
Á jarðhæð eru stofa og borðstofa í björtu og fallegu rými með parket á gólfi og útgengt í einstaklega fallegan bakgarð með bæði steyptri verönd sem og timburverönd. Í rúmgóðu eldhúsinu eru flísar á gólfi og fín innrétting. Baðherbergi neðri hæðar var allt endurnýjað árið 2019, það er flísalagt í hólf og gólf og þar er mjög fín innrétting og baðkar með sturtu í. Á neðri hæð er rúmgott svefnherbergi með parket á gólfi. Þvottahús er flísalagt með innréttingu og þaðan er útgengt. Forstofa er flísalögð og afar rúmgóð. Í forstofu er stigi upp á efri hæð.
Á efri hæð er rúmgott og fallegt hol með parket á gólfi og upptekið loft. Á efri hæð eru þrjú rúmgóð svefnherbergi, öll með parket á gólfi. Baðherbergi efri hæðar var eins og baðherbergi á neðri hæð, allt endurnýjað árið 2019. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, þar er sturta og flott innrétting. 
Hér er um að ræða virkilega flotta eign með mörgum góðum kostum s.s. staðsetningu, sælureit í fallegum garði með algjörri friðhelgi, rúmgóð rými (stofa, eldhús, svefnherbergi o.fl.), góðu geymsluplássi og margt, margt fleira.
 

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send..

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send..