Túngata 12, 710 Seyðisfjörður
58.000.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
7 herb.
248 m2
58.000.000
Stofur
2
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
1950
Brunabótamat
107.600.000
Fasteignamat
43.100.000

INNI fasteignasala s. 580 7905 -  [email protected]
 

Fallegt og vel staðsett einbýlishús með fjórum svefnherbergjum, baðherbergjum á báðum hæðum, nýlegri innréttingu í eldhúsi, endurnýjuðu baðherbergi á efri hæð 2020 og sér íbúð í bílskúr þar sem allt var endurnýjað árið 2017.
Stofa og borðstofa eru í björtu og rúmgóðu rými með parket á gólfi og útgengt á timburverönd í garði. Í eldhúsi er falleg innrétting sem sett var upp 2017, þar er parket á gólfi og borðkrókur. Inn af eldhúsi er mjög rúmgott og endurnýjað þvottahús með flísum á gólfi. Má kannski segja að þarna sé bæði þvottahús og geymsla og einnig gott pláss fyrir bæði frysti og auka ísskáp. Útgengt er úr þvottahúsi. Baðherbergi á neðri hæð er flísalagt í hólf og gólf, þar er sturta. Á neðri hæð eru tvö svefnherbergi, bæði með parket á gólfi. 
Á efri hæð er rúmgott hol með upptekið loft og parket á gólfi. Baðherbergi efri hæðar var allt endurnýjað árið 2020, þar er baðkar og handklæðaofn. Á efri hæð eru tvö svefnherbergi með parket á gólfi og úr öðru herberginu er útgengt á svalir. Góðar geymslur eru undir súð á efri hæð. Í garði er góður garðskúr/geymsla. 
Í bílskúr er glæsileg tveggja herbergja íbúð sem útbúin var árið 2017. Þar eru stofa og eldhús í opnu rými með parket á gólfi og sér svefnherbergi þar inn af. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, þar er sturta. Mjög fín íbúð, tilbúin til útleigu. 

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send..

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send..