INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
Einbýlishús á tveimur hæðum sem þarfnast orðið viðhalds og endurbóta. Þriggja herbergja íbúð á efri hæð og mikið en nokkuð hrátt rými á neðri hæð.Á efri hæð er nokkuð stór stofa/borðstofa með parket á gólfi og fallegu útsýni. Útgengt er á rúmgóðar svalir. Í eldhúsi er nokkuð góð innrétting og parket á gólfi. Baðherbergi lítur vel út með fíbó-plötum á veggjum. Á baðherbergi er sturta. Tvö svefnherbergi eru á hæðinni, bæði með parket á gólfi.
Neðri hæð er eins og áður sagði fremur hrátt rými sem þarfnast algjörrar endurnýjunar en þar er nokkuð mikið pláss og ættu því að vera umtalsverðir möguleikar á að gera eitthvað áhugavert við þá fermetra.
Hér er um að ræða eign sem vert er að skoða vel og helst með fagmanni.