INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
Einbýlishús með þremur svefnherbergjum og bílskúr á Vopnafirði.Gengið er inn í rúmgóða forstofu með flísum á gólfi og þaðan er komið inn á hol. Á holi er fataskápur sem nýtist sem forstofuskápur. Inn af holi er sjónvarpshol og úr því er gengt í flest rými í húsinu. Til hægri er eldhús, beint áfram er stofa og til vinstri er gangur þaðan sem eru þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Tvö svefnherbergjanna eru svipað stór með þreföldum fataskápum og svo er hjónaherbergi rúmgott með stórum fataskáp með rennihurðum. Parket er á gólfum. Baðherbergi er með flísum á gólfi og plötum á veggjum, sturtuklefa, snyrtiborði með stórum spegli og lýsingu, salerni, vaski í innréttingu og efri skáp. Stofa og borðstofa eru í björtu rými með stórum gluggum til austurs og er gengt þangað bæði frá holi og eldhúsi. Úr stofu er gengt út í snyrtilegan garð með grindverki. Einnig er pallur sunnan við húsið. Eldhúsinnrétting lítur vel út og hafa framhliðar hennar verið endurnýjaðar. Inn af eldhúsi er þvottahús með máluðu gólfi og þaðan er útgengt. Inn af þvottahúsi er gengt í geymslu sem einnig er með máluðu gólfi, þar er hitakútur og opnanlegt upp á háaloft. Bílskúr er með steyptu gólfi, vaski og rafdrifinni hurð, gluggar snúa niður að sjó.
Að utan er húsið timburklætt, þak lítur vel út á húsi en aðeins þreyttara á bílskúr. Skipt hefur verið um járnplötur í þaki, skipt hefur verið um einn glugga í stofu og timbur þar sem þörf var á. Eigninni hefur almennt verið vel við haldið, en nú er kominn tími á að mála það að utan.
Snyrtileg eign á fallegum stað á Vopnafirði. Frábært útsýni og nálægð við náttúruna.