Fletir / Flatir, 701 Egilsstaðir
45.000.000 Kr.
Lóð
0 herb.
0 m2
45.000.000
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
0
Brunabótamat
0
Fasteignamat
5.580.000

INNI fasteignasala s. 580 7905 -  [email protected]
 

INNI fasteignasala kynnir í einkasölu jörðina Fletir / Flatir, 701 Egilsstaðir, fastanúmer 234-0015 ásamt öllu því sem eigninni fylgir.
Um er að ræða ca 100 ha jörð sem er í ríflega 6 km fjarlægð frá þéttbýlinu á Egilsstöðum.
Enginn húsakostur er á landinu er ljóst að hér er land með töluverða möguleika. Fyrir liggur að samþykkt náma hefur verið í farvegi Eyvindarár innan við jörðina og má því ætla að malartekjur séu möguleiki innan merkja þessarar jarðar. 
Um er að ræða land sem skipt var úr Ketilsstöðum á Völlum árið 1940 með svofelldri lýsingu: 
Landhluti sá er seldur er, takmarkast þannig: Að norðan við Köldukvísl, að austan, Eyvindará, að sunnan Fagradalsá, frá ósi og upp í krók þann er áin beigir niður úr Fagradalsminni. Þaðan bein lína úr króknum – eftir legu árinnar að Fagradalsbraut, þá ræður Fagradalsbraut að vestan að Köldukvísl.
Þá fylgja beitarréttindi í Sauðárhlíðarfjalli, innan takmarka Ketilsstaðalands. 
 
Það athugast að tilvísun til Fagradalsbrautar (þjóðvegar milli Reyðarfjarðar og Egilsstaða) miðar eðli málsins samkvæmt við legu þess vegar árið 1940. Ekki liggja fyrir hnitsett landamerki, en hægt er að nálgast mynd af mörkum jarðarinnar skv. Nytjalandi hjá INNI fasteignasölu. Það kort er til viðmiðunar og ræður framangreind lýsing ef mismunur er til staðar. 

Nánari upplýsingar á skrifstofu INNI fasteignasölu, 580 7905. 

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send..

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send..