Miðbraut 7, 690 Vopnafjörður
35.000.000 Kr.
Einbýli
5 herb.
180 m2
35.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1967
Brunabótamat
84.350.000
Fasteignamat
28.950.000

INNI fasteignasala s. 580 7905 -  [email protected]
 

Einbýlishús á tveimur hæðum ásamt bílskúr. Mikið endurnýjað hús miðsvæðis í bænum.
Íbúð er öll á efri hæð og skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús og svefnherbergjaálmu með 4 svefnherbergjum, góðum gangi og baðherbergi.
Gengið er upp steyptan stiga á stigapall í L horni hússins. Þar er komið inn í flísalagða forstofu með hengi og efri skápum. Lítil geymsla inn af henni sem nýtist mjög vel. Gólfhiti í forstofu, eldhúsi og baði. 
Úr forstofu er komið í hol, plastparket. Til vinstri er rúmgóð stofa og flæðir vel úr henni yfir í borðstofu og eldhús. Fyrir tveimur árum var allt rifið út í þessu rými og skipt um gólfefni, lagnir, innréttingar, glugga (eftir að skipta um rennihurð og stofuglugga, en þeir fylgja). Eldhús er inn af þvottahúsi, ofn og örbylgjuofn í góðri vinnuhæð, flísalagt, þvottavél og þurrkari í góðri vinnuhæð, 246 l hitavatnskútur, ný hurð út á rúmgóðan pall sem er meðfram allri vestur og suður hlið hússins. 
Herbergisálma er með þremur barnaherbergjum, baðkar upptekið salerni, innrétting, stór spegill, þríhyrnt baðkar, flísalagðir veggir. Á gangi er góður fataskápur / skápur fyrir lín. Í hjónaherbergi er nýr fimmfaldur fataskápur. 
Í kjallara er stór geymsla (undir herbergjaálmu). Frárennslislagnir hafa verið endurnýjaðar.
Bílskúr er rúmgóður, á lóðamörkum og sambyggður bílskúr sem tilheyrir næstu lóð. Ein rafdrifin bílgeng hurð og manngeng hurð á hlið bílskúrsins.  
Skipt var um járn á þaki íbúðarhússins fyrir ca 8-10 árum síðan. 

Einnig er hægt að koma að húsinu að ofanverðu (frá Hamrahlíð) í dag. 

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send..

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send..