INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
Stórt íbúðarhúsnæði með fjórum svefnherbergjum og sérlega rúmgóðu stofu- borðstofu- og eldhúsrými. Eignin er miðsvæðis í Neskaupstað og möguleikarnir í þessum ríflega 360 fermetrum eru miklir.Íbúðin samanstendur af íbúð á hæð, risi og kjallara með sér inngangi.
Á jarðhæð er stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými. Þar er einnig sjónvarpshol. Þrjú svefnherbergi eru á hæðinni og mjög rúmgott fataherbergi eða geymsla inn af einu þeirra. Rými fyrir baðherbergi er til staðar en eftir er að útbúa baðherbergið.
Í risi er stórt opið rými með parket á gólfi og inn af því rúmgott herbergi sem einnig er með parket á gólfi. Salerni er í risi.
Kjallari er að mestu opið rými. Þar er eldhúsinnrétting, tengi fyrir þvottavél og bráðabirgðasturta. Ekki er full lofthæð í kjallara.
Ástand er að mörgu leyti gott en engu að síður ljóst að eignarhluturinn þarfnast einhvers viðhalds og endurbóta.