Skálanesgata 4, 690 Vopnafjörður
55.000.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
6 herb.
243 m2
55.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1986
Brunabótamat
117.800.000
Fasteignamat
37.400.000

INNI fasteignasala s. 580 7905 -  [email protected]
 

Glæsilegt hús með 5 svefnherbergjum og tvöföldum bílskúr sem hefur verið mikið endurnýjað að innan á síðustu árum.

Tvöfaldur og mjög rúmgóður bílskúr. Flísalagt og gryfja öðru megin. Bílfær hurð og hleri sem auðvelt er að breyta í opnanlega hurð. Skápar. Innangengt úr bílskúrnum í gegnum geymslu með niðurfalli og hurð út í garð til norðurs. Þaðan er gengið áfram inn í þvottahús með tækjum í góðri vinnuhæð í innréttingu og góðum skápum. Þaðan er hægt að ganga inn í eldhús, nýjar flísar á gólfi, innrétting máluð og ný bekkplata og tæki. 
Stofa er mjög rúmgóð, parketlögð (quickstep), þaðan er gengt út á pall til suðurs. Arin, sem er þó ekki í notkun. Gestasalerni inn af forstofu. Forstofa með sömu flísum og eldhús, með þreföldum forstofuskáp. Stigi upp er með sama gólfefni og stofa og efri hæð. 
Á efri hæð er hol, hjónaherbergi, tvö fataherbergi, fjögur barnaherbergi og baðherbergi.
Hjónaherbergi með glugga og svölum til suðurs og glugga til austurs, inn af því er rúmgott fataherbergi. Baðherbergi er með fallegu frístandandi baðkari og góðri sturtu, bæði með gylltum blöndunartækjum. Lítið fataherbergi fyrir barnaherbergin. Tvö af barnaherbergjunum eru með hurðir út á svalir til austurs. Í vesturenda eru tvö svefnherbergi, annað mjög rúmgott.   

Að utan lítur húsið nokkuð vel út nema kominn er tími á að mála þak og veggi. 
 

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send..

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send..