INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
Vel staðsett einbýlishús með fjórum svefnherbergjum og innbyggðum bílskúr. Stofa, borðstofa og eldhús eru í afar rúmgóðu og opnu rými með upptekið loft að hluta og parket á gólfi. Arinn er í stofu. Á neðri hæð eru tvö svefnherbergi sem og flísalagt baðherbergi með sturtu. Inn af forstofu er mjög rúmgott þvottahús.
Á efri hæð eru tvö svefnherbergi og er útgengt á svalir úr öðru herberginu. Öll herbergi í húsinu eru með parket á gólfi. Á efri hæð er baðherbergi og þar er baðkar.
Bílskúr er ekki fullkláraður og ókynntur.