Miklabraut 66, 105 Reykjavík (Austurbær)
119.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
5 herb.
152 m2
119.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1946
Brunabótamat
71.150.000
Fasteignamat
87.800.000
Opið hús: 04. nóvember 2025 kl. 17:00 til 17:30.

*** OPIÐ HÚS MIKLABRAUT 66, 1. HÆÐ. EIGNIN VERÐUR SÝND ÞRIÐJUDAGINN 4. NÓVEMBER KL 17:00-17:30. ***

Styrmir Þór Sævarsson löggiltur fasteignasali og LF fasteignasala kynna:

Glæsileg og rúmgóð 5 herbergja 152,2 fm sérhæð við Miklubraut 66, 105 Reykjavík. Frábær staðsetning í Hlíðunum beint á móti Klambratúni. Stutt er í alla helstu þjónustu. Húsið hefur nýlega fengið mikið og gott viðhald að utan skv. upplýsingum frá seljanda, meðal annars var hús steinað, sett nýtt handrið á svalir, þak lagfært og fleira.  Eignin var öll endurnýjuð að innan af fyrri eigendum um 2020, þar á meðal nýtt eldhús, nýtt baðherbergi, nýir gluggar og rafmagn endurnýjað. Bílskúrsréttur fylgir eigninni skv. eignaskiptasamningi.

Forstofa með flísum á gólfi. Við hlið hennar er tengi fyrir þvottavél og þurrkara en var áður gestasnyrting.
Stofa og borðstofa í opnu mjög rúmgóðu rými. Fallegir gólfsíðir gluggar. Útgengi á góðar suðursvalir.
Stofa/sjónvarpsherbergi er við hliðina á stærri stofunni. Rennihurð á milli. Væri auðveldlega hægt að nota sem svefnherbergi.
Eldhús var endurnýjað fyrir nokkrum árum. Falleg hvít L-laga innrétting. Gott vinnu- og skápapláss. Ofn í vinnuhæð. Tengi fyrir uppþvottavél. Parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Var endurnýjað fyrir nokkrum árum. Innangeng sturta. Vegghengt klósett. Góður speglaskápur. Handklæðaofn.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með fataskáp. Parket á gólfi.
Svefnherbergi II er mjög rúmgott með fataskáp. Parket á gólfi.
Svefnherbergi III er með fataskáp. Parket á gólfi.

Bílskúrsréttur fylgir eigninni skv. eignaskiptayfirlýsingu.
Sérgeymsla í kjallara skráð 6,8 fm. Útigeymsla undir stiga skráð 2,9 fm.
Sameiginlegt þvottahús í kjallara.

Nánari upplýsingar veitir Styrmir Þór Sævarsson löggiltur fasteignasali í síma 846-6568 eða á netfanginu [email protected].

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send..

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send..