LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali
[email protected] kynna:
Strandgata 55, Eskifirði, neðri hæð og herbergi í kjallara.
3 fasteignir eru í húsinu, 2 íbúðir og rými sem hýsir tæknibúnað fyrir síma og fjarskipti.
Eignarhlutur þessarar íbúðar í húsi og lóð er 45,25%
Gengið er upp nokkrar tröppur frá götu að inngangi í íbúðina sem er á vesturhlið hússins en einnig væri hægt að nota inngang við götu eða mögulega gera verönd þar fyrir framan og nýta þann inngang út á veröndina.
Komið er inn í ágæta forstofu og þaðan er stigi niður í kjallarann.
Inn af forstofunni er komið í stórt alrými sem er með stórri eldhúseyju og innréttingu og er einnig rúmgóð stofa.
Eldtaustur skápur frá því pósthús var á hæðinni er við hlið eldhússins.
Baðherbergið er mjög rúmgott og með góðri sturtu og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara..
Svefnherbergin á hæðinni eru 2 annað ágætlega rúmgott en hitt heldur minna.
Í kjallara eru 2 rúmgóð herbergi og 2 litlar geymslur í séreign íbúðarinnar.
Parket er á herbergjum, flísar á baðherbergi en gólf í alrýminu er hvítmálað.
Hitaveita er í húsinu.
Lóðin er í óskiptri sameign.
Grunnskóli er í næsta húsi við íbúðina og leiksvæði og sparkvöllur á bakvið húsið.
Matvöruverslun er í næsta nágrenni við húsið.