INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
Mjög fallegt og vel skipulagt einbýlishús með þremur svefnherbergjum og innangengt í bílskúr. Húsið var byggt árið 2006, er í góðu ástandi og stendur á fallegum útsýnisstað.Stofa og eldhús eru í opnu rými með upptekið loft og parket á gólfi. Útgengt er í flísalagða sólstofu og þaðan á stóra timburverönd í garði. Baðherbergi er flísalagt, þar er bæði baðkar og sturta. Þrjú svefnherbergi eru í húsinu, öll með parket á gólfi. Auk þess er lítið milliloft sem vel má nýta sem fjórða herbergið. Þvottahús er flísalagt og innangengt er í bílskúr í gegnum þvottahús. Bílskúr er snyrtilegur, með millilofti og bílhurð með sjálfvirkum opnara.
Bílastæði er steypt og garður vel frágenginn með stórri timburverönd og skjólveggjum.
Gólfhiti er í flestum rýmum hússins.