INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
Mjög flott þriggja herbergja íbúð á 5. hæð í fjölbýli með lyftu við Hamragerði á Egilsstöðum. Frábært útsýni.Stofa og eldhús eru í opnu og björtu rými með parket á gólfi og útgengt á rúmgóðar svalir. Baðherbergi er flísalagt, þar er baðkar með sturtu í. Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni, bæði með fataskápum og parket á gólfi. Flísar eru í þvottahúsi.
Íbúðinni tilheyrir rúmgóð geymsla í kjallara ásamt hlutdeild í hjóla- og vagnageymslu á jarðhæð.
Nánari upplýsingar hjá INNI fasteignasölu.