Melgerði 9 íbúð 204, 730 Reyðarfjörður
41.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
91 m2
41.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2006
Brunabótamat
46.850.000
Fasteignamat
31.250.000

Melgerði 9 (íbúð 204): Hugguleg, þriggja herbergja íbúð á jarðhæð (að ofanverðu séð) í góðu fjölbýlishúsi miðsvæðis á Reyðarfirði. Stutt í flesta þjónustu, leik- og grunnskóla og helstu íþróttamannvirki.

ATH: Mest allt innbú eignarinnar fylgir/getur fylgt með kaupunum.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // [email protected]

Alrými: Anddyri, eldhús og stofa eru öll í sama rými með plastparketi og töföldum fataskáp, úr stofu er útgengt á svalir með útsýni til austurs og vesturs. 
Eldhús: Er í alrými, sæmilegasta eldhúsinnrétting, opið og gott rými.
Stofa: Sömuleiðis í alrým, parketlögð.
Svefnherbergi: Tvö svefnherbergi, annað með fjórföldum fataskáp hitt tvöföldum, sama flæðandi parket og í alrými.
Baðherbergi: Flísar á gólf, fínasta vaskinnrétting og speglaskápur. Þvottahúsið er inn úr baðherberginu.
Geymsla: Sér geymsla fylgir íbúðinni en hana má finna á neðstu hæð sameignar, geymslan er 6,8mað stærð. Þar eru einnig hjóla- og vagnageymsla í sameign allra.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við: 
Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // [email protected]

Mest allt innbú eignarinnar fylgir/getur fylgt með kaupunum þ.m.t:
Sjónvarp, ísskápur, uppþvottavél, þvottavél (mjög nýleg), frystir, sófi, rúm, ýmis eldhúsraftæki, borð, stólar og fleira óupptalið.

Skráning eignarinnar skv. HMS:
Fasteignanúmer
: F2291976
Stærð: Alls 91,1m² (íbúð er 84,3m2 og geymsla er 6,8m2)
Byggingarár: 2006
Byggingarefni: Steypa
Gildandi fasteignamat: 31.250.000 kr.
Fyrirhugað fasteignamat 2026: 37.400.000 kr.
Brunabótamat: 46.850.000 kr.
Lóð: Leigulóð í eigu Fjarðabyggðar, stærð lóðar er 2929,7m²

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaupendur) 0,8% (einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 m.vsk.

Skoðunarskylda kaupenda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.        
Fasteignasala Austurlands skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Fasteignasala Austurlands // Austurvegi 21, 730 Reyðarfirði

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send..

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send..