LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali
[email protected] kynna:
Gauksmýri 6, Neskaupstað, FjarðabyggðUm er að ræða mikið endurnýjað einbýlishús á einni hæð.
Aðgengi að eigninni er gott og stórt bílastæði við útidyrnar.
2 skjólsælir og sólríkir sólpallar og sléttur og gróinn garður.
Rúmgóð forstofa, stórt flísalagt baðherbergi með góðri sturtu og rúmgott þvottahús með dyrum út á timburpall með heitum potti.
Gólfhiti er í forstofu og á baðherbergi.
Búr með hillum. Flísar á gólfi. Lagnir fyrir salerni undir flísum.
Stór stofa með dyrum út á góðan sólpall er samliggjandi eldhúsinu.
Eldhúsið er með góðri innréttingu og eyju.
3 rúmgóð svefnherbergi eru í húsinu en voru áður 4 og væri hægt að færa aftur í fyrra horf.
Parket er á gólfum í stofu, eldhúsi, herbergjum (nýlegt vinyl parket á stofu, eldhúsi og hjónaherbergi)
en flísar á forstofu, búri, baðherbergi og þvottahúsi.
Geymsluloft er yfir húsinu.
Heitur pottur á sólpalli fylgir.
Raflögn fyrir rafhleðslustöð. Stöðin fylgir ekki. Rafmagnstafla var nýlega endurnýjuð.
Geymsluskúr í garði fylgir.
Húsið er nýlega málað að utan af fagmanni og þakið var málað í september 2025.
Flaggstöng í garði fylgir.
Um er að ræða þægilega og fallega eign.
Gerð snjóflóðavarnargarða fyrir ofan húsið miðar vel.