Árdalur 18, 735 Eskifjörður
69.800.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
4 herb.
123 m2
69.800.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2023
Brunabótamat
62.550.000
Fasteignamat
48.000.000

LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali [email protected] kynna:
Árdalur 18, Eskifirði, Fjarðabyggð. 
Um er að ræða 4ra herbegja 123,5 fermetra ENDAÍBÚÐ að vestanverðu í raðhúsi.
Stórsólpallur er sunnan og vestan við húsið og verönd að norðanverðu.

Húsið er Íslensk hönnun teiknað af Rúnari Inga Guðjónssyni, húsið kom í einingum frá Eistlandi og var samansett á byggingastað.
Burðarvirki hússins er timbur.
Húsið er klætt að utan með Alucoil Larsen álklæðningu frá Idex ehf.
Aðallitur dökkgrár en gaflveggir og inndregnir veggir minni íbúða eru með ljósri álklæðningu.
Á þaki er báruþakál, dökkgrátt að lit. Svartar álrennur utan á þakkanti.
Húsið er klætt að innan, veggir og loft með 12,5mm Fermacell harðgifsi, sterkar trefjaplötur sem mygla ekki ef vatn kemst að þeim.
Inngangar íbúða eru yfirbyggðir með viðarklæðningu að innan, við stærri íbúðir er ljós álklæðning og við minni íbúðir er dökkgrá álklæðning. Skjólveggir eru með ljósri álklæðningu.
Gluggar/Útihurðir eru ál-tré gluggar/hurðir, hvítt að innan en svart að utan.
Hitakerfi: Gólfhitalagnir, tengdar saman við tengigrind.
Raflagnir: Rafmagn verður fullfrágengið með tenglum og slökkvurum (hefðbundnum, hvítum).
Frágangur innanhúss:
Í eldhúsi er hvít hálf-glans innrétting en að hluta með dökk brúnni viðaráferð. Króm Grohe blöndunartæki og 50x40 stálvaskur. Vandað Bosch helluborð/bakaraofn, vifta OG AÐ AUKI örbylgjuofn, uppþvottavél og ísskápur m/frysti.  Led ljós eru í innréttingu.
Borðplötur eru úr glæsilegum dökkgráum steini.
Helluborðið er í eyju ásamt viftu í helluborðinu sjálfu. Í eyjunni eru tvöfaldir skápar og skúffur.
Í öllum svefnherbergjum og forstofu eru vandaðir hvítir fataskápar.
Í þvottahúsi er stálvaskur með skáp undir.
Innihurðir eru frá Birgisson ehf, hvítlakkaðar og forstofuhurðar eru hvítar með glerrömmum.
Gólfefni eru frá Birgisson ehf, öll gólf nema blautrými og forstofa, eru með vönduðu harðparketi frá Birgisson ehf.
Forstofa, baðherbergi og þvottahús/geymsla eru flísalögð.
Á baðherbergi er vönduð hálfglans hvít baðinnrétting með háum skáp og djúpum skúffum undir vaski.
Salerni er vegghengt, sturta með steingólfi og glerþili.
Blöndunartæki frá Grohe. Krómaður handklæðaofn.
Baðherbergi eru flísalagt í hólf og gólf.
Lagnaleið fyrir rafmagnshleðslu út á bílastæði. (hleðslustöð fylgir ekki).
Lagnaðleið fyrir heitan pott beggja vegna við húsið.
Íbúðin er með tvöföldu steyptu bílaplani.
 

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send..

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send..