Litluskógar 13 - öll tilboð skoðuð!, 700 Egilsstaðir
76.000.000 Kr.
Parhús/ Parhús á einni hæð
4 herb.
138 m2
76.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2002
Brunabótamat
67.950.000
Fasteignamat
64.800.000

INNI fasteignasala s. 580 7905 -  [email protected]
 

Mjög flott fjögurra herbergja íbúð í parhúsi á einni hæð ásamt frístandandi bílskúr og geymslu. Húsið er í góðu ástandi og lítur í alla staði vel út. Garður er fallegur og vel hirtur, bílastæði er malbikað, aðkoma að húsi er hellulögð og timburverönd með skjólveggjum er í bakgarði.
Flísar eru í forstofu og þar er bæði fataskápur og hengi. Stofa og eldhús eru í opnu rými með parket á gólfi og útgengt er úr stofu á timburverönd í bakgarði. Baðherbergi er flísalagt, þar er sturta, fín innrétting og handklæðaofn. Hiti er í gólfi á baðherbergi, eldhúsi og forstofu. Þvottahús er einnig flísalagt. Þrjú rúmgóð svefnherbergi eru í íbúðinni, öll með parketi og fataskápum. Bílskúr er flísalagður, þar er bílhurð með sjálfvirkum opnara, ágætt milliloft og rúmgóð innrétting. Salerni er í bílskúr. Bak við bílskúr er geymsla með steyptri plötu. Hitalagnir (ótengdar) eru í gólfplötu.
Hér er um að ræða virkilega vel skipulagða og fallega eign á góðum stað við Litluskóga á Egilsstöðum.

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send..

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send..