INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
Ljómandi fín fjögurra herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi við Múlaveg á Seyðisfirði.Stofa og borðstofa eru í rúmgóðu rými með parket á gólfi og útgengt á suðursvalir. Í eldhúsi er nokkuð rúmgóð innrétting og borðkrókur. Dúkur er á gólfi í eldhúsi. Inn af eldhúsi er þvottahús. Á baðherbergi er baðkar með sturtu í og dúkur á gólfi. Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni, öll með dúk á gólfi og fataskápar eru í öllum herbergjum. Í íbúðinni er góð geymsla og einnig tilheyrir íbúðinni hlutdeild í hjóla- og vagnageymslu á jarðhæð.