Túngata 11B, 735 Eskifjörður
Tilboð
Einbýli/ Einbýlishús með aukaíbúð
4 herb.
231 m2
Tilboð
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
1977
Brunabótamat
101.660.000
Fasteignamat
57.000.000

LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali [email protected] kynna:
Túngata 11B, Eskifirði ásamt EIGNARLÓÐ.
Mjög rúmgott einbýlishús ásamt bílskúr. Hér er sannkallað fjölskylduhús og í raun eru 2 íbúðir í húsinu svo möguleiki er á leigutekjum. 
Húsinu hefur verið haldið mjög vel við.
Húsið er byggt í tvennu lagi. Upphaflega húsið er rúmgott og fallegt hús með mansard-þaki og er byggingarár þess skráð 1925, árið 1977 var húsið stækkað verulega með vandaðri byggingu á 2 hæðum, sú viðbygging er 112 fermetrar en eldra húsið 94 fermetrar.
Bílskúrinn er 25 fermetrar byggður 1963
Húsið stendur hátt á fallegri lóð miðsvæðis á Eskifirði.
Fallegt og mikið útsýni er frá húsinu.
Á efri hæð eignarinnar er góð flísalögð forstofa og lítið baðherbergi með sturtu inn úr henni.
Lítill gangur með góðum fataskáp er við hlið forstofunnar,
úr honum er gengið inn í rúmgóða stofu með flottum útsýnisgluggum og er opið milli eldhúss og stofu.
Eldhúsið er með góðri nokkuð stórri innréttingu og einnig er gott vinnuherbergi á hæðinni.
Þessi rými eru í nýrri hluta hússins.
Í eldri hluta efri hæðarinnar er mjór gangur og við hann 3 góð svefnherbergi
og rúmgott baðherbergi með baðkari og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Lítil geymsla er við enda gangsins.
Mjór og brattur stigi liggur niður á neðri hæðina þar sem í  raun er önnur íbúð sem samanstendur af forstofu,
rúmgóðri stofu, skemmtilegu eldra eldhúsi, baðherbergi með baðkari,
2 svefnherbergjum, holi sem getur nýst sem vinnuaðstaða
og mjög miklu geymslurými í nokkrum aðskildum rýmum.
SKIPTI Á EIGN (verð allt að 90 milljónir) Í REYKJAVÍK, KÓPAVOGI EÐA MOSFELLSBÆ KOMA TIL GREINA. 

 

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send..

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send..