Hjaltabakki 14, 109 Reykjavík
67.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
4 herb.
105 m2
67.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1968
Brunabótamat
52.720.000
Fasteignamat
63.700.000
Opið hús: 01. apríl 2026 kl. 17:30 til 18:00.

*** OPIÐ HÚS HJALTABAKKI 14, 109 REYKJAVÍK. ÍBÚÐ 201. EIGNIN VERÐUR SÝND MIÐVIKUDAGINN 1. APRÍL KL 17:30-18:00. ***

Falleg, björt og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á 2. hæð við Hjaltabakka 14, 109 Reykjavík. Leiksvæði í garði á milli húsa. Árin 2020-2021 var mikil viðhaldsvinna unnin á húsinu skv. seljanda. Skipt var um glugga og gler, svalahurðir og tréverk í útveggjum, steinsteypuviðgerðir, húsið málað og að hluta klætt með áli, svalagólf epoxýlökkuð. Stutt í alla helstu þjónustu, góðar gönguleiðir og fallega náttúru. Íbúðin er laus mánaðarmót mars/apríl 2026.

Forstofa og gangur eru parketlögð.
Stofa er björt og opin við eldhús. Parket á gólfi.
Eldhús er bjart og opið við stofu. Falleg hvít innrétting. Ofn í vinnuhæð. Útgengi á skjólgóðar suðursvalir með útsýni yfir tré og gróður.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Sturtuklefi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi. Parket á gólfi.
Svefnherbergi II er rúmgott. Góðir skápar. Parket á gólfi.
Svefnherbergi III er þokkalega rúmgott. Góður skápur. Parket á gólfi.

Í kjallara er mjög rúmgóð 14 fm. geymsla sem fylgir íbúð. Hjólageymsla í sameign.
Sameiginleg bílastæði við húsið.
Sameign er snyrtileg.

Að sögn seljanda voru vatnslagnir í íbúð hreinsaðar 2025.
Rafmagnstafla í sameign endurnýjuð 2025.
Upprunalegt viðarparket er á gólfum í íbúð fyrir utan baðherbergi.

Hluti innbús má fylgja fyrir sanngjarnt verð.

Nánari upplýsingar veitir Styrmir Þór Sævarsson löggiltur fasteignasali í síma 846-6568 eða á netfanginu [email protected].

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send..

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send..