INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
Hér er um að ræða einn eignarhluta af nokkrum í nýlegu atvinnuhúsnæði í Neskaupstað, byggt 2023. Rýmið sem um ræðir er að mestu salur með tveimur stórum bílhurðum og góðri lofthæð en einnig er þar móttaka, kaffistofa og baðherbergi með sturtu. Samtals er um að ræða 243,9 m² rými sem mögulegt er að skipta upp í tvö jafn stór rými.
Eignarhlutnum tilheyrir sér afnotaflötur á lóð.