LF-fasteignasala/Lindin fasteignir og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali, s. 893-1319,
[email protected].kynna:
Strandgata 64, með bílskúr 735 Eskifirði.Nánar tiltekið eign merkt 01-06, fastanúmer 229-7101 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Strandgata 64 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 229-7101, birt stærð 137.6 fm.
Um er að ræða eina af skemmtilegum íbúðum í raðhúsi sem áður var netagerð og gekk undir nafninu Bergen vegna tengsla upprunalegs eiganda við Noreg.
Íbúðin sem hér um ræðir er í SA enda hússins OG ER MEÐ INNBYGGÐUM BÍLSKÚR.Um er að ræða 98,6 fermetra íbúð auk 39 fermetra bílskúrs. Eignin er á 2 hæðum í húsi á sjávarkambinum á Eskifirði.
Húsið var byggt 1960 sem netaverkstæði en breytt í íbúðir fyrir nokkrum árum. Gengið er inn af verönd framan við íbúðina en einnig er hægt að ganga inn í gegn um bílskúrinn.
Komið er inn í flísalagða forstofu með góðum skáp þegar komið er inn af veröndinni en sé komið úr bílskúrnum er komið inn í stigahús. Ágætt herbergi með gólfsíðum glugga er við hlið forstofunnar, parket á gólfi og fataskápur.
Inn af forstofunni er stigi upp á efri hæðina.
Stiginn liggur upp í alrými og er eldhús öðru megin við stigann en rúmgóð stofa með dyrum út á svalir hinumegin.
Af svölunum og úr alrýminu er glæsilegu útsýni út á fjörðinn og njóta Hólmatindur og Hólmaborgir sín ekki víða betur. Á Á efri hæðinni er flísalagt baðherbergi með innréttingu og sturtuklefa.
Rúmgott svefnherbergi er á efri hæð íbúðarinnar.