Nesgata 29, 740 Neskaupstaður
Tilboð
Einbýli/ Einbýlishús með aukaíbúð
7 herb.
115 m2
Tilboð
Stofur
3
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1920
Brunabótamat
54.250.000
Fasteignamat
30.900.000

Lf-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali [email protected] kynna:
Nesgata 29, Prófastshúsið, Neskaupstað. 
2ja íbúða hús (2 fasteignanúmer) sem hefur fengið gott viðhald í gegn um tíðina og verið talsvert endurnýjað. 
2ja herbergja aukaíbúð á neðstu hæð sem getur gefið ágætar leigutekjur.
Íbúðin á neðstu hæð samanstendur af svefnherbergi, forstofu, stofu, eldhúsi, baðherbergi og aðstöðu fyrir þvottavél.
Á aðalhæðinni er skipulag hússins þannig að það er komið inn í forstofu og þaðan inn á gang þar sem er stigi upp í rishæð.
Inn úr ganginum er svefnherbergi og inn af því nýtt flísalagt baðherbergi.
Við hlið gangsins er eldhús með nokkura ára innréttingu frá Brúnás og jafngömlum tækjum.
Úr eldhúsinu er gengið í rúmgóða tvöfalda stofu sem er með fallegum skrautlistum í lofti.
Á aðalhæðinni er hiti í gólfi í forstofu, herbergi, baðherbergi og eldhúsi.
Í risinu eru 2 góð svefnherbergi, baðherbergi og geymslupláss.
Eigandi vill selja allt húsið í einu en hægt er að kaupa hvora íbúð fyrir sig af mismunandi aðilum svo framarlega sem báðar íbúðir seljast um leið.

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send..

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send..