Hlíðargata 57, 750 Fáskrúðsfjörður
32.400.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
3 herb.
70 m2
32.400.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1981
Brunabótamat
39.300.000
Fasteignamat
17.350.000

LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir, löggiltur fasteignasali [email protected] kynna:
Hlíðargata 57, Fáskrúðsfirði. 
Hlýleg, björt og falleg 3ja herbergja íbúð á 1. hæð í fjölbýlishúsi sem er 2 hæðir og kjallari. (hálf hæð upp frá götu).
Íbúðin er öll nýlega máluð.
2 bílastæði fylgja íbúðinni samkvæmt samkomulagi íbúa.
Rúmgóður stigapallur er framan við ibúðina.
Eldvarnarhurð í íbúðina er til en hefur ekki verið sett upp.
Íbúðinni tilheyrir rúmgóð geymsla í kjallara. Í geymslunni eru vandaðar stálhillur sem fylgja með. Einnig getur frystikista fylgt.
2 svefnherbergi eru í íbúðinni, misstór en bæði með skápum. Einnig er skápur í forstofu.
Milli herbergjanna 2ja er endi á breiðum gangi. Þetta pláss getur nýst sem vinnuaðstaða eða leiksvæði fyrir börn.
Eldhúsið er opið inn í stofuna. Ísskápur og uppþvottavél geta fylgt með í kaupunum.
Baðherbergið er rúmgott. Það er baðkar og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara
Svalirnar eru ágætlega rúmgóðar.
Sameiginlegt þvotta- og þurrkherbergi er í kjallara ásamt góðir geymslu fyrir vagna, reiðhjól og dekk 
Gott útsýni er frá íbúðinni.
Heilsugæsla, skóli og leikskóli eru handan götunnar og stutt er í matvöruverslun.
Vel rekið húsfélag er í blokkinni og er góð samstaða um endurbætur. Sumrið 2025 var þak blokkarinnar endurnýjað. Framhlið og gaflar hússins hefur nýtlega verið málað. Svalagólf íbúðarinnar er nýlega endurnýjað og verða málaðar í sumar þegar suðurhlið hússins verður máluð.

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send..

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send..