INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
Virkilega falleg og sérlega vel skipulögð tveggja herbergja endaíbúð í raðhúsi á Eskifirði.Stofa og eldhús eru í opnu rými með parket á gólfi og útgengt er úr stofu í garð. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, þar er sturta, handklæðaofn og flott innrétting. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara er á baðherbergi. Svefnherbergi er rúmgott með parket á gólfi og fjórföldum fataskáp.
Mjög falleg og vel skipulögð eign með góðu skápaplássi.
Innréttingar eru frá HTH.
Á gólfum er parket og flísar frá Birgisson. Innihurðir einnig frá Birgisson.
Utanhússklæðning er álklæðning frá Stacebond.
Blöndunartæki frá Grohe.