INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
Mjög fín þriggja herbergja íbúð á 2.hæð með frábæru útsýni.
Gengið er beint inn á 2.hæð af bílastæði, því þarf hvorki að fara í stiga né lyftu.Stofa og eldhús eru í opnu rými með parket á gólfi og útgengt á svalir. Útsýni úr stofu, eldhúsi og af svölum er mjög gott. Baðherbergi er flísalagt, þar er baðkar með sturtu í. Inn af baðherbergi er flísalagt þvottahús. Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni, bæði með fataskápum og parket á gólfi.
Á 1.hæð er geymsla er tilheyrir íbúðinni ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.