Lf-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali
[email protected] kynna:
Melgerði 9, Reyðarfirði. LAUS
INNBÚ FYLGIR MEÐ VIÐ SÖLU.3ja herbergja íbúð á götuhæð í góðu fjölbýlishúsi miðsvæðis á Reyðarfirði.
2 rúmgóð svefnherbergi eru í íbúðinni.
Góðar SV-svalir eru við stofu.
Eldhúsinnrétting er úr eik, góðir skápar eru í herbergjum og anddyri.
Baðherbergi með baðkari. Þvottahús með vaski er inn af baðherbergi.
Gólf baðherbergis og þvottahúss eru flísalögð.
Önnur gólf eru með plastparketi.
Hjóla- og vagnageymsla og sér geymslur fyrir hverja íbúð eru á jarðhæð.