INNI fasteignasala s. 580 7905 - [email protected]
Glæsileg og fullbúin fjögurra herbergja íbúð með bílskúr í parhúsi á einni hæð - NÝBYGGING!Íbúðin verður tilbúin til afhendingar í apríl 2026!Stofa og eldhús eru í opnu rými með upptekið loft, innfeldri lýsingu og útgengt á timburverönd við suðurhlið hússins með fallegu útsýni og tengingu við villta náttúru. Eldhús er vel skipulagt með rúmgóðri innréttingu og bæði ísskápur og uppþvottavél fylgja með í kaupunum.
Baðherbergi er flísalagt, þar er rúmgóð sturta, mjög fín innrétting og handklæðaofn.
Þrjú rúmgóð svefnherbergi eru í íbúðinni, öll með parket á gólfi og fataskápar eru í öllum herbergjum.
Forstofa er flísalögð með fataskápum.
Þvottahús er flísalagt og með góðri innréttingu. Innangengt er í 32,8 m² bílsúr í gegnum þvottahús. Í bílsúr er gólf með epoxy, bílhurð og milliloft.
Mjög góð og aðgengileg geymsla (fellistigi) er yfir hluta íbúðarinnar.
Húsið er klætt að utan með Alusink-klæðningu í bland við slétt stení.
Vel skipulögð og falleg eign með fallega náttúru í bakgarðinum.Kaupandi greiðir skipulagsgjald (0,3% af brunabótamati) eftir að eignin hefur verið afhent.
Reglugerð um skipulagsgjald.
Nánari upplýsingar hjá INNI fasteignasölu.