LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali
[email protected] kynna:
Bakkagerði 2, Stöðvarfirði.Til sölu snyrtileg íbúð á jarðhæð í 2ja íbúða húsi á fallegum útsýnisstað á Stöðvarfirði.
BÁÐAR ÍBÚÐIR Í HÚSINU ERU TIL SÖLU OG VILJA EIGENDUR HELST SELJA ÞÆR BÁÐAR SAMAN EÐA FÁ Á SVIPUÐUM TÍMA TILBOÐ Í BÁÐAR ÍBÚÐIRNAR ÞÓTT FRÁ SITTHVORUM AÐILANUM VERÐI.
Húsið er klætt að utan og steinsteypt samkvæmt opinberri skráningu en er talið byggt út holsteini að hluta.
Varmadæla er í íbúðinni sem lækkar hitunarkostnað verulega.
Stór og nokkuð slétt EIGNARLÓÐ er við húsið.
Íbúðin sem hér um ræðir hefur nýlega verið mikið endurnýjuð að innan.
Skipting íbúðarinnar er samkvæmt etirtöldu: Forstofa, gangur, stofa, geymsla, baðherbegi með aðstöðu fyrir þvottavél, 4 svefnherbergi og eldhús.
Góður sólpallur.
Rúmgott bílastæði er við húsið.