LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali
[email protected] kynna:
Bakkagerði 2, Stöðvarfirði.Til sölu snyrtileg íbúð á 2. hæð í 2ja íbúða húsi á fallegum útsýnisstað á Stöðvarfirði.
BÁÐAR ÍBÚÐIR Í HÚSINU ERU TIL SÖLU OG VILJA EIGENDUR HELST SELJA ÞÆR BÁÐAR SAMAN EÐA FÁ Á SVIPUÐUM TÍMA TILBOÐ Í BÁÐAR ÍBÚÐIRNAR ÞÓTT FRÁ SITTHVORUM AÐILANUM VERÐI.
Húsið er klætt að utan og steinsteypt samkvæmt opinberri skráningu en er talið byggt út holsteini að hluta.
Varmadæla er í íbúðinni sem lækkar hitunarkostnað verulega.
Stór og nokkuð slétt EIGNARLÓÐ er við húsið.
Frá útitröppum er komið er inn í forstofu og gengið upp nokkrar tröppur. Þar er komið inn í rúgott hol sem getur nýst sem borðstofa. Úr holinu er gengið inn í önnur rými íbúðarinnar sem eru eldhús, þvottahús, baðherbergi, stofa og 3 svefnherbergi.
Rúmgott bílastæði er við húsið.